úfffff... verkefnavinna
jæja, nú fer endaspretturinn á verkefninu að hefjast, allt að gerast. beta-prófun á þriðjudaginn, skil á föstudaginn. forsetinn kemur í heimsókn á morgun til þess að kynna sér verkefnavinnu háskólanema, fyndið. annars er það annað af mér að frétta að ég var að taka mína síðustu vakt á skemmtistaðnum nasa sem miðasöludrottning í gærkvöldi, þ.a. að nú er ég laus allar helgar ef þið viljið bóka mig... fyrstir koma, fyrstir fá :-) það kom alveg fullt af skemmtilegu fólki að heimsækja mig í gær í vinnuna, t.d. hann ómar berg, en af honum er það að frétta að hann er að fara til svíþjóðar á fimmtudaginn eftir viku, og verður þar í 3 daga á vegum ísal á námskeiði. hann ætlar líka að fara til mílanó í sumar að heimsækja hann ásgeir ingason sem vinnur þar á auglýsingastofu og lifir eins og kóngur. ómar er ennþá að leita að ástinni einu.
jamm, þetta var fyrir þá sem hafa ekki heyrt í honum ómari okkar... og já, hann bað að heilsa öllum, svona fyrir þá sem þekkja hann ómar. fyrir hina sem gera það ekki, þá er hann frægastur fyrir það að eiga ljósblá jakkaföt, bleika pífuskyrtu og hvíta slaufu (að mig minnir) og leika í myndbandi fyrir á móti sól, betur þekktur sem "afmælisstrákurinn". alltaf gaman að hitta hann ómar :-)


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim