þriðjudagur, maí 14, 2002

lokaverkefni - vinna

jæja, búin með lokaverkefnið og byrjuð að vinna. úffff, talandi um verkefnið. hópurinn minn flutti erindi um verkefnið í morgun að viðstöddum verkefniskennara (yndislegur) og prófdómara (dóni og dru...). við vorum öll voða fín, strákarnir í jakkafötum, allir nema einn, en hann var í venjulegum buxum, hvítri skyrtu og með grátt bindi, voða fínn bara. nema hvað, að þegar hann ætlaði að byrja að tala, sagði prófdómaradru... "hvað heitir þú aftur?"... "ég ætla að taka niður nafnið á þér því þú ert svo áberandi druslulegastur." ég átti ekki til eitt aukatekið orð. og ekki nóg með þetta, heldur stóð hann upp í miðju erindi okkar og hljóp fram á gang til þess að ná á hópinn sinn sem var að ganga fram hjá. og annað, hann hafði eiginlega ekki tíma til þess að hlusta á okkur, þurfti að vera annars staðar, svo hann stóð upp og tók saman áður en við höfðum lokið máli okkar. jamm, ég er svo aldeilis hlessa... mér fannst þetta allt vera svo mikill bölvaður dónaskapur. Við erum búin að púla yfir þessu verkefni stanslaust alla dag í 3 vikur, finnst við ekki eiga svona skilið. vona bara að einkunnin verður sanngjörn. jæja, nú er ég búin að ausa úr skálum reiði minnir, og líður mun betur... takk.