skil á morgun
síðasti dagurinn í verkefnavinnu þessarar annar. við erum ennþá vinir öll sömul, engir stórir árekstrar hafa komið upp. það kom reyndar upp ósætti í gær, ég missti mig gjörsamlega yfir icon-vali á hnappinn ' viðskiptavinir '. valið stóð á milli icons með karli og konu í bláum jakkafötum sem héldu á sitthvorri skjalatöskunni, annars vegar, og svarts taflpeðs, hins vegar. Hvort átti icon-ið að vera fólk, því viðskiptavinir eru fólk, eða peð, því viðskiptavinir eru peð??? ég hafði mjög sterkar skoðanir á þessu máli. þið megið giska á hvort icon-ið ég vildi hafa. en annars hefur verkefnið gengið vel, asp-síðan okkar er hérna . það má sko alveg gera allt á síðunni. ég ætla að benda á eitt sem fattast annars ábyggilega ekki, en það er rosa kúl easter egg á síðunni. hint... það tengist þremur línum sem eru alltaf í bakgrunninum... hint... og að þær renni allar saman í eina... hint... og að bíða í 5 sekúndur. reynið! ætla að halda áfram, ekki nema 17 klst. í skil...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim