mánudagur, maí 27, 2002

skoðanakönnun

djö...!!!
sá að beta rokk var með rosa flotta skoðanakönnun á síðunni sinni, og langaði að gera svoleiðis líka. ég fór á þessa sniðugu síðu og hófst handa. planið var að gera skoðanakönnun um survivor, þ.e. með hverjum fólk héldi af þeim sem eftir eru. ég var ekki alveg með öll nöfnin á hreinu þannig að ég fór á google og leitaði að "survivor" og fór á fyrstu síðuna sem leitin skilaði.
ég varð brjáluð!!! á forsíðu síðunnar var sigurvegarinn í survivor!!! þ.a. nú veit ég hver vinnur og get alveg eins hætt að horfa á þáttinn. ég sem var orðin ekkert smá spennt yfir þessu og alveg að lifa mig inn í hvern einn og einasta þátt. ég hef tekið þátt í gleði og sorg keppenda alveg til þessa, og nú ert allt ónýtt, allt!!!
en skoðanakönnunin er tilbúin, endilega að kíkja á hana og kjósa, hún hefur kostað mig mikið...
kjósa í skoðanakönnun