fimmtudagur, júní 13, 2002

úfffff... ég held að það sé 63 stiga hiti á skrifstofunni minni.
er samt með viftu sem blæs "köldu" á mig, en það hefur sína kosti og galla. kosturinn er að sjálfsögðu sá að mér er ekki eins ógislega heitt (hmmm... smart), en gallinn er sá að þegar hún blæs á mig og kælir þá blæs hún svo mikið í augun á mér, sem er ekki gott svona til lengdar. þið vitið, eins og þegar e-r heldur augunum á ykkur galopnum og blæs ógislega mikið í þau... frekar óþægilegt, jájá.
en ég er samt frekar kúl... svona með-vindinn-í-hárinu-pæja... tíhíhíhí...