úffffffffffff... úffffffffffffff... úffffffffffff
jón var að senda frá sér kviðling í tilefni útilegunnar... ég er í hláturskasti!!!
ekkert smá inspererandi vinna sem hann er í... hahaha... kípitöpp :-)
Útileguhugleiðing
Ég bruna eftir þjóðveginum og horfi á fjöllin skjótast mér hjá líkt og spjót sem Einar Vilhjálmsson hefur hent á Ólympíuleikunum 1988.
Ég stíg út úr bílnum og finn angan af landi varma. Ég legg saman tvo og tvo og fæ út Varmaland.
Það er ákvörðunarstaðurinn.
Ég sé grösugar hlíðar og grónar sléttur.
Hér skulum vér vera, hér vil ég ávallt vera.
Fögur er hlíðin heyri ég bergmála innan fjallasalarins. Er þetta nokkuð langbrókin aldraða að hrópa? Hver veit.
Það er kominn aftann, ég sit fyrir aftan bálköstinn og læt mína fögru tóna leika um hlustir hnokkanna og hnátanna.
Hnokkarnir og hnáturnar andast sökum ófögurs óms.
Drykkjan hefst.
Ölvun heltekur mannskapinn sem ebola-veira og einn fellur af öðrum.
Þynnka hefst og landsleikur nálgast óðfluga, líkt og óð fluga. Undo heyrist.
Landsleikur búinn og fagnandi áhangendur flykkjast um tjaldsvæðið líkt og blaðlýs í ballarhafi.
Drykkja hefst á ný og ómþýður söngur Jóns tælir landann líkt og Sírenurnar í fornöld.
Leikjameistarinn fer á stjá og setur útileguleikana 2002.
Allir fara í leiki, bjórhlaupið er vinsælt en verður mörgum að fjörtjóni, ekki þó Jóni sem ber sigur úr býtum.
Dauði.
Þynnka hefst á ný og matur snæddur af áfergju sem hungursneyð hafi geisað í sýslunni síðustu misseri. Allir svangir.
Allir halda heim á leið.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim