miðvikudagur, júní 12, 2002

hei... fór áðan og keypti mér ís, eins og ég er reyndar búin að gera á hverjum degi í marga daga. jæja. ég er búin að finna geeikt sniðuga leið til að fá meiri ís, heldur en maður á í raun að fá. ég bið sko alltaf um lítinn ís í boxi með jarðaberjasósu og þrist, en læt ekki þar við sitja, heldur bið um að ísinn verði settur í stærra box en samt hafður bara lítill. "ekkert mál!" segja ískonurnar alltaf, en það er sko ekki ekkert mál. þeim er það öllum ómögulegt að gera lítinn ís í svona stórt box, þannig að ég fæ alltaf stóran ís með öllu tilheyrandi á verði lítils... hahahahaha... jeeeeeeee.