fimmtudagur, júní 27, 2002

nú er minns sko þreyttur... ég og stebbi fórum upp í sumarbústað til mömmu og pabba í gær og keyrðum í vinnuna kl. 8 í morgun. það væri svo sem alltílæi nema það að þar var til bjór og hvítvín... jújú, sem við drukkum. eftir mikla og glæsilega kanaspilamennsku uppgötvuðum við að klukkan var orðin 2. fórum þá að sofa. venjulegt fólk höndlar kannski svona lítinn svefn... en ekki ég! úffffff... ég er ekkert smá sjoppuleg...