þriðjudagur, júní 18, 2002

útilegan... stærsta útihátíð sumarsins hingað til??? ábyggilega. staðarvalsmeistarar ferðarinn (ég og herdís) stefndu 25 manns á varmaland um helgina. ætli við höfum ekki verið um 20 manns á staðnum á föstudagskvöldinu, drukkum, sungum, drukkum, spiluðum fótbolta og frisbí, drukkum, fórum í tveggjamannakollhnísa, drukkum og grilluðum, geeikt!!! á laugardeginum gerðum við þessa típísku útileguhluti... eða.. við horfðum á england - danmörk í baulu, fórum í sund og frisbí.
svo gerðist e-ð yfirnáttúrlegt, kraftaverk! ég lagði mig eftir sundið í dágóða stund og þegar ég vaknaði hafði það gerst. þegar ég steig út úr tjaldinu höfðu fullt fullt af nýjum tjöldum bæst við tjaldbúðina okkar ásamt fullt fullt af nýju fólki, sem ég þekkti ekki einu sinni allt!!! þetta var hið ótrúlegasta fólk. og af hverju var það þarna? jú, það þekkti mann sem þekkti mann sem þekkti konu sem var ein af okkur, eða e-ð svoleiðis. mjög fyndið. um kvöldið var slegið upp brekkusöng, en allur hópurinn rölti uppí brekku sem var þarna fyrir ofan, með eins og 3 gítara og spilara og gommu söngbóka, og svo var bara partí langt fram á nótt. við töldum 70 manns í brekkunni!!! þetta átti sko bara að vera útilegan okkar, en þetta var bara bónus!!! ég hitti m.a. 3 unga drengi sem voru með mér í 3ja bekk í mr! ótrúlegt...
útilegan var sem sagt hreinasta snilld, fyrir utan það að ég brann meira en allt! en rautt verður brúnt, ég er sannfærð um það!