ein samstarfskona mín var að vinna í landsbankanum fyrir nokkrum árum og hún var að segja mér sögu sem mér þótti rosa fyndin.
það var þannig að e-n daginn kom gæi í afgreiðsluna til hennar, voða yfirvegaður, og bað um að fá að hitta forstöðumanninn. jújú, það var ekkert mál, og eftir smá stund var honum vísað inn til hans. ekki leið á löngu þangað til forstöðumaðurinn kom út af skrifstofunni sinni og sagði fólkinu að hringja í lögregluna því það væri maður með sprengju inni hjá honum. það var og. löggan kom, víkingasveitin kom... bara allur pakkinn. húsið var rýmt og starfsfólkið þurfti að húka úti í e-ja þrjá klukkutíma eða þangað til gæjanum var náð. þá kom það í ljós að hann var með sódastrím-tæki innan á sér! hann ætlaði sem sagt að sprengja bankann upp með sódastrím-tæki. bara fyndið... hehehehehe. kröfur mannsins voru þær að bankinn átti að lána e-jum manni (ekki þessum) peninga til þess að gera heimildarmynd um hvali... hehehehehehe... ennþá fyndnara.
fyndið líka að löggan og víkingasveitin voru alveg þrjá tíma að ná manni með sódastrímtæki. hann hefði nottla getað unnið mikinn skaða með tækinu...eða. hvað er annars hægt að gera með því annað en að búa til sódastrím? mér dettur bara í hug e-s konar barefli. jú hann hefði líka getað slegið e-n í augað með rafmagnssnúrunni... jájá.
þetta er alveg hugmynd... sko með sódastrím-tækið... já eða gera heimildarmynd um hvali... hmmmmmm...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim