alllllúúúúú köben!
loksins komin með nettenginguna mína.
við erum á leiðinni út í búð að kaupa e-ð í matinn og soleiðis. í gær þegar við vöknuðum upplifðum við alveg hræðilegt. þið vitið hvernig það er þegar maður er ógislega svangur og langar í e-ð gott og segir við mömmu "það er ekkert til að borða"... "jújú, þú getur fengið þér brauð, það er til ostur, skinka, bananar, cocoa puffs og afgangur síðan í kvöldmatnum í gær" segir hún alltaf, en það er samt aldrei nógu gott. í gær gátum við stebbi sagt með 100% sanni "það er ekkert til að borða!". þetta var alveg verst. vorum á rosa djammi kvöldið áður og vöknuðum í gír eftir því. við gátum fengið okkur vatn úr krananum, salt með joði, edik eða sykur, sem íbúarnir á undan okkur höfðu skilið eftir. jei!
við gátum svo dröslað okkur út á bensínstöð og keypt frosna pizzu, jógúrt og brauð. ömmmmm... besta pizza sem ég hef fengið á ævinni, líklega því ég var svo über svöng. hún var nebblega eiginlega frekar ógó, gular baunir og e-ð sona drasl.
well... farin út í búð.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim