miðvikudagur, ágúst 28, 2002

ég fór að túristast í dag um miðbæ kaupmannahafnar... ein. það var mjög skemmtilegt. labbaði strikið til enda, labbaði aðra götu sem heitir e-ð köbmagergade... tralla... hún var rosa skemmtileg, eiginlega skemmtilegri en strikið. þar fann ég erótíska safnið, ætlaði að kíkja þar inn en það kostaði 79 dkr, fannst það fulldýrt, hætti því við. við þá götu var líka rundetårn og hann labbaði ég upp, fannst það pínu erfitt. akkuru er ekki selt vatn þarna uppi??? well well. mjög flott að horfa yfir kaupmannhöfn þaðan, en ég rúllaði mér fljótlega niður og labbaði meira. fann alveg fullt af skemmtilegum búðum, mun skemmtilegri en på ströget, er meira að segja komin með mína uppáhaldsskóbúð... jei :-)
lenti í mjög fyndnu þegar ég stoppaði í bjór á leiðinni heim. fann einn stól við borð á sona útikaffihúsi, var samt ekki alveg viss hvort hann væri laus eða ekki. ég labbaði að borðinu, sem var ansi þétt við þrjá unga menn og borðið þeirra, brosti breytt og sagði "er den optaget?". ungi maðurinn næst mér brosti og sagði "jú ken sit hír, ónlý bjútífúl blond görls ken sit hír"... ég svaraði strax "eruð þið íslenskir?". "já, hvernig vissiru?" vá, ekkert smá augljóst! man... alveg fyndið. þá voru þetta þeir þorvaldur og friðrik úr skagafirðinum og hann gunnsteinn frá fossi tralla e-ð. þeir voru allir komnir með ba-gráðuna sína frá landbúnaðarháskólanum á hvanneyri og voru að hefja nám í e-jum sona bændaskóla hér til þess að fá master. hehehe... fyndið að vera master í því að vera bóndi... eða e-ð. þeir voru samt ekkert mjög skemmtilegir, pínu lúðar. eitt fannst mér reyndar mjög fyndið, þegar þorvaldur var að kveðja nýju bandarísku vini sína (sem hann hafði eignast þarna á kaffihúsinu), spurði hann hvaðan þeir væru og þeir voru frá atlanta. "jess, læk mattlokk!" man! hver man svona? ég var sko í hláturskasti.
leiðindafréttir með böddímálið okkar... þeir eru allir búnir! leiðinlegt! ingó, stebbi, kiddi og jón eggert eru allir með sinn hver... og við engan. öhhh... svindl!
við erum samt búin að kynnast smá fólki hérna á kollegi-inu, t.d. honum jesper og færeyingunum brynhild og bardi, svo kynntumst við líka íslendingunum óskari og jenný (minnir mig að hún heiti) en þau fluttu út í dag... hmmmm... :-(
annars er bara allt í gúddí... nema það að msn-ið er ekki komið inn hjá mér og ég sakna þess soldið að geta ekki spjallað við vini mína þar.
hej, hej!