föstudagur, ágúst 30, 2002

hei... gleymdi alltaf að segja frá laugardeginum síðasta þegar ég og rásta tókum númer í karaoke á sam's bar. það var mjög fyndið. eins og þeir sem þekkja mig vel vita, þá er ég mjög lítil söngkvinna, og karaoke er það síðasta. en í danmörku, hvað getur maður ekki gert? við ragnheiður skráðum okkur með pulp-lagið common people og vöktum líka þessa gríðarlegu lukku, baunarnir voru sko 100% sjúkir í okkur... hehehe. það er líka gaman frá því að segja að sólveig og stebbi voru no-show í laginu sínu, sólveigu leið víst ekki mjög vel, og skundaði út eftir dágóða veru á klósetti staðarins... hehehe. við ákváðum líka að fara fljótlega heim, það var bara eitt vandamál... hvar áttum við eiginlega heima? fundum næturstrætó sem fór á lyngby station og tókum svo bara leigubíl þaðan eins og sönnum íslendingum sæmir, ætluðum ekkert að flækja þetta neitt frekar. en við vorum ekki hætt, því þegar við komum á kollegi-ið heyrðum við smá óm af tónlist og kveiktum þá bæði... "kollegi-barinn!". vorum ekki lengi að finna hann. eftir þónokkra veru þar, dönskukennslu og grúpvang við drowning með backstreet boys (mjög fyndið...) fórum við loksins upp að sofa. þegar við vöknuðum var EKKERT til að borða.