"bank, bank, bank... Bank, Bank, Bank,... BANK, BANK, BANK, BANK!!!!!!!!!". Vá, voða er einhver óþolinnmóður að banka á hurðina hjá okkur. Við vorum bæði steinsofandi enda "morgunn" á okkar mælikvarða. En þar sem ég var nú vaknaður og það leit ekkert út fyrir að bankinu ætlaði að linna ákvað ég að rölta niður og opna. Og gvöð minn góður, heldurru að það hafi ekki verið votta vinir okkar! Ég var alveg grautfúll og syfjaður þannig ég leyfði þeim ekki að klára setninguna heldur sagði þeim að koma seinna og lokaði hurðinni og skreið loks aftur upp í rúm. Smá mistök samt að segja þeim að koma seinna, hehe : /. Nú svo kíkti ég í póstkassann þegar ég hafði náð rænu á nýjan leik og viti menn, þar biðu okkar tvær votta bækur! Metsölu titlarnir "Is Thera a Creator. Who Cares About You?" og "Life - How did it get here? By evolution or creation?". Jæja alla veganna kominn með meira efni til að glugga í þegar ég tefli við páfann. Er orðinn frekar leiðir á IKEA vörulistanum, hann er svoldið einhæfur.
Svo ákváðum við að vera grand og panta okkur pizzu til að reyna að kæta okkur eftir atvik gærkveldsins. Við fundum einhvern aumann matseðil sem við höfðum fengið í póstkassann um daginn og ákváðum að prófa að panta þaðan. Þegar pizzurnar loksins komu, 30 mín á eftir áætlun, voru þær kaldar og við fengum 2 lítra af slóvensku kóki með!!! Æ skítt með það, þetta var betra en ekkert.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim