þriðjudagur, september 24, 2002

á laugardaginn fengum við heimsókn... það kemur sko aldrei neinn í heimsókn. við urðum rosa spennt og stukkum niður. frábært... tveir danskir vottar jehóvar! jújú, við vildum ekki vera dónaleg og lentum á heilmiklu spjalli. ég náði aldrei almennilega hvað þeir vildu með þessari heimsókn, annað en að spjalla. þeir voru jú að segja að guð væri góður og að við ættum að lesa í bibluna. ég trúi á guð og að hann sé góður... ok... erum við þá ekki bara á sama bandi... og allir sáttir? ég nennti eiginlega ekki að ræða þetta við ókunnugt fólk... á útlensku, ég var líka á miðjum msn-fundi með skólahópnum mínum og hafði ekki tíma í þetta. en þeir gátu talað endalaust um allt og ekkert. eftir langt spjall spurðu þeir hvort þeir mættu koma aftur um næstu helgi og ræða frekar við okkur hvers vegna guð "leyfir" stríð og ætluðu þá líka að gefa okkur bók. við afþökkuðum pent, og nokkuð skýrt að við töldum, en ég er nokkuð viss um að við eigum eftir að fá heimsókn aftur næsta laugardag. man... hvernig losnar maður við svona fólk sem skilur ekki nei takk? þeir vilja náttúrulega bara vel... en hvað er það sem þeir vilja nákvæmlega? skil það ekki alveg. well... við verðum dónaleg þegar þeir koma næst ef þess þarf, nennum ekki að standa í þessu endalaust.