við fórum út á lífið á föstudaginn... það var skiptinemapartí á ofurklúbbnum va va voom! hvað er málið með nafngiftina á þessum stað eiginlega? alla vega... þarna var aðgangseyririnn 50 DKR (það þykir mikið), og þegar maður hafðir borgað það samviskusamlega þá var manni skylt að geyma jakka og tösku í fatahenginu, sem kostaði 10 DKR, til viðbótar! hvað er málið með þetta fyrirkomulag eiginlega? alla vega... við hittum amager-strákana fljótlega eftir að við komum inn, en þeir voru allir mjög skrautlegir. stebbi jóns var alveg fyndinn... hann labbaði bara út um allt, en stoppaði reglulega og tók róbótann... hehehe... hversu fyndið er það. annars voru þeir bara að skoða stelpur og ég að boða þeim boðskapinn "ekki setja öll eggin í sömu körfuna". tónlistin var rosalega... léleg. já, það var e-r súrínami að spila now-geisladiska frá 1998. macarena og mambo nr. 5 heyrðist oftar en einu sinni, og það sorglega var, við alveg brjálaðan fögnuð. danir hlusta á svo vonda tónlist. hver vill koma með mér á gullfoss-og-geysis-djamm þegar ég kem heim? ekki það að þetta hafi verið alslæmt kvöld, við hittum t.d. vinkonu strákanna sem er frá litháen... hún heitir olía... hehehehehe. ég fékk hláturskast, fyndið að heita olía. hún var yfir sig ástfangin af stebba jóns, en hann tók bara róbótann fyrir hana... hehehehe. áður en við fórum heim þá stoppuðum við á select og fengum okkur pylsu að hætti þeirra dana... og það er annað mál... hvað er málið með þessar dönsku pylsur? mín var allverulega dijon-sinnep-uð => óæt. well well. en kvöldið var skemmtilegt... förum samt ábyggilega ekki aftur á va va voom!


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim