miðvikudagur, október 09, 2002

ég og stebbi fengu flugu í höfuðið í gær. förum í helgarferð til london með go, það er svo ódýrt! við urðum geðveikt spennt og fórum beint á www.go-fly.com og leituðum að ódýrri ferð. planið var sko að fara þá út núna á fimmtudaginn og koma heim jafnvel á mánudaginn. það er ódýrt að fljúga heim á mánudaginn en dýrt að fljúga út á fimmtudaginn (eða ca. 15 þús isk... sem er lítið, en samt mikið :-S), þ.a. þetta hentaði okkur ekki... sem betur fer!!! stundarbrjálæðið, mar! nýkomin heim frá prag... fyrir utan það að vera í útlöndum! man... en ég er alveg komin með bakteríuna, langar að ferðast út um allt. næstu staðir sem mig langar að heimsækja eru ítalía, new york, parís og svo e-ð asíuland, það er ábyggilega ýkt spennó. það er bara svo dýrt að ferðast frá íslandi. ef ég ætti t.d. heima hér í danmörku þá væri ég á sífelldu ferðalagi... hér er þér borgað fyrir að vera námsmaður og að ferðast kostar skid og ingenting. ég eeeeelska danmörk!