Jæja þá er kominn tími til að segja frá laugardeginum.
Þetta stefndi í að verða hinn fullkomni laugardagur, tveir fótboltaleikir og planið að kíkja á kaffihús eftir allt saman. Við Rut fórum niðrí bæ um miðjan dag og þrömmuðum á sportpúbbinn John Bull. Þar hittum við fyrir heilan helling af Íslendingum sem ætluðu að fylgjast með leiknum Ísland - Skotland. Þetta átti bara að verða auðveldur leikur og öruggur sigur, eginlega upphitum fyrir leikinn á Parken um kvöldið. Ég tilti mér niður með ódýran bjór í hönd og horfi glottandi á þessar fáu, en háværu, skosku hræður sem voru einnig mættar til að fylgjast með leiknum. En ég gjörsamlega missti hökuna í gólfið á 7. mínútu eða svo og við vitum öll hvernig þessi bölvaði leikur endaði. Svei sé Atla Eðvaldss. og svei sé ljóta Englendingnum á púbbnum sem var með stæla!
En jæja, ég, Rut, Ásta og Jenni gleymdum þessu sem fyrst, tróðum í okkur einum McDonalds og héldum á Parken. Og hvílíkt og annað eins! Danir kunna sko að skemmta sér á leikjum. Þeir sungu og trölluðu allan tímann og tóku bylgjur sem fóru 4-5 hringi kringum völlinn! Þetta var alveg frábært. Leikurinn endaði svo með 2-0 sigri Danmerkur en hefði auðveldlega getað verið mun stærri. Eini gallinn var að það var svo bölvanlega kalt að ég fékk kul á bæði fingur og tær. Svo var náttúrulega ekkert hægt að kaupa heitt að drekka til að ylja sér, bara öl og pulsur! Jæja ég fæ þá bara eina pulsu og einn öl... : ). Svo kíktum við á púbb, fengum okkur smá bjór og tókum svo næturstrætó heim. Hið ágætasta kvöld og nokkrar myndir... sem koma kannski seinna.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim