þriðjudagur, október 01, 2002

Jæja, kominn tími til að leggja í 'ann. Ætlum að hendast út á Lyngby station og þaðan með lest til Ellebjerg þar sem Sunnytours rúturnar bíða okkar. Það er eins gott að þetta séu einhverjar ofurrútur með lazyboy sætum og rassnuddi því annars á ég örugglega eftir að fá legusár. Púff, hvað gerir maður í 18 tíma rútuferð? Ég held að frúin í Hamborg sé alveg out, kannski sýna þeir leikinn í Champions league í kvöld!!! Aldrei að vita nema við römbum inn á netkaffi í Prag. Þið bara bíðið spennt, ble ble (",)