þriðjudagur, október 29, 2002

roðni roðni roðni... ég er ennþá að roðna.

við vorum í sameiginlegum mat inni á eldhúsi rétt í þessu þar sem jesper og monika elduðu lasagne, mjög gott mjög gott. fatið fyrir framan okkur kláraðist og jesper kallar yfir til mín hvort okkur langi ekki í meira, nóg til. ég segi pent "nej tak", strýk á mér magann og segi svo "jeg er fuld". jájájájá... helledusseda... mín bara orðin full kl. 8 á þriðjudagskvöldi... haldiði að það sé nú!!! ég fattaði þetta um leið... "ómægot stebbi, ég sagði honum að ég væri full!" kjáninn sem ég get verið. held/vona að það hafi enginn heyrt þessa vitleysu, það hló a.m.k. enginn, kannski eru þau bara svona vel upp alin. það leiðinlega er að ég kann sko alveg að segja södd... það er sko medt. en neinei... ég var fuld.
[note to self: medt=södd, fuld=full]