fimmtudagur, nóvember 21, 2002

jei... hálfnuð í prófum!
búin með vélbúnað og hönnun og smíði hugbúnaðar... á því aðeins eftir hugbúnaðarfræði og reiknirit.
ég kann ekki ennþá að vera í prófum, þetta að hella sér í lestur og leiðindi, hef aldrei komist upp á lagið með það. hugsunarhátturinn hjá mér er alltaf og endalaust "þetta reddast". það hefur jú alltaf reddast en ég kvíði því að einn daginn gerir það það (?) ekki. sjónvarpið og ísskápurinn eru helstu óvinir mínir þessa dagana, ég virðist sækja mest í þetta í prófum... skrítið. grannar 2x á dag, spin city, með afa, popptíví... allt þetta verður svo spennandi og skemmtilegt. talandi um gott sjónvarpsefni, ég ætla sko ekki að láta herra ísland fram hjá mér fara í kvöld... það er alltaf fyndið. "fullkomin" afskökun fyrir að læra ekki... úje.