komin heil heim úr húsafelli.
held að það hafi verið 27 manns í þremur bústöðum. eins og sönnum tölvunördum sæmir þá var með í för ofurtölva, ofurgeislaspilari, mp3-spilari og tveir ofurhátalarar... jújú, bara helstu nauðsynjar. strategían mín "sofa lítið, borða lítið" virkaði of vel, ég var farin að sofa á miðnætti... ekki mikið úthald þar. sumir voru til 4, aðrir til 6, sumir voru í pottinum í 6 tíma samfleytt! en það var alveg gaman frá 19 - 24, svo var ég líka alveg eins og blóm þegar ég vaknaði eftir 12 tíma svefn, laus við alla þynnku og vesen... bjútífúl! ég fór með myndavélina mína, gekk svona líka rosa vel að taka myndir framan af kvöldi, eða þangað til ragnheiður fékk hana lánaða til myndatöku. ég hitti hana aftur eftir ca. 10 mínútur "ég eyddi öllum myndunum sem þú varst búin að taka... sorrí". ég var í hláturskasti, hvernig fór hún eiginlega að því? skil þetta ekki... "ar jú sjör jú vont tú dílít oll the piktsjörs?"... "jess"... "are you ríllí ríllí sjör?" "jess jess". engar myndir! hún fékk líka það verkefni að taka aðrar 20 myndir í staðinn. hún kom sér undan því með því að láta gunna fá hana sem tók 20 naflamyndir! kannski set ég saman getraun... hver-á-naflann-getraun... hver veit.
annars er ég bara á leiðinni í lokaverkefnið á morgun, fæ þá að vita hverjir verða með mér í hóp næstu 3 vikurnar... ég er ýkt spennt.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim