sunnudagur, desember 15, 2002

Fyrsta prófið búið og gekk bara vel. Að minnsta kosti held ég það. Kennarinn setti svo lausnirnar á netið og ég fór eitthvað að skoða þær og komst að því að við erum ekki sammála um allt... Held samt að hann hafi gert villu í einu dæminu, hehe.
Ég held ég sé búinn að finna þann mesta prófabana sem til er!!! Rakst inn á leikjasíðu batman.is. Mæli eindregið með wordshark og ping pong. Annars eru þeir eiginlega bara allir jafn skemmtilegir... Ekki nema 5 dagar eftir.