þriðjudagur, janúar 28, 2003

loksins mundi ég eftir og nennti að setja þessar blessuðu bjórtennismótsmyndir inn. ég var að rúlla yfir þær rétt í þessu... mér fannst þetta allt saman miklu fyndnara þá... útlandaruglan, skiluru. en fyrst þetta er allt saman komið þá getið þið skoðað þær hér.
annars ligg ég á alveg fullt af myndum sem ég hef ekki komið í verk að setja inn, t.d. jóla- og áramótageim, sem kemur kannski "bráðum".

mánudagur, janúar 27, 2003

bóndadagurinn var á föstudaginn. ég bauð stebba út að borða á sticks'n sushi, sem er mjög hetjulegt þar sem ég kýs að leggja mér ekki fjörufæði (get alveg eins farið niður í fjöru og sleikt steinana) eða neitt með sogskálum til munns. ég fékk mér í staðinn alls kyns sticks sem bragðaðist misvel, að mestu þó vel. svo fórum við í leikhús að sjá rakstur eftir ólaf jóhann, reyndar í boði europay, það var alveg brill. eftir þetta menningarrölt brugðum við okkur á ara í ögri að hitta kristínu, ágústu og þórhildi, skunduðum síðan öll þaðan á hverfisbarinn í stjórnmálafræðipartí eitthvert, eða við nýttum okkur a.m.k. stjórnmálafræðitilboðin á barnum, það var gott. þangað streymdi að fólk eins og þorbjörg og jón, tóta, ásta björk og fleiri. varð úr hin ágætasta skemmtan. ég held samt að hápunktur þessarar hverfuferðar hafi verið atriðið sem ágústu sýndi mér einni, því er nú ver og miður. ég sat ein uppi í sófanum okkar (var að passa allt dótið), ágústa kemur labbandi af klósettinu, nýbúin að gera sig svona líka sæta og fína. en aumingja ágústa... hún lýsti þessu eiginlega best sjálf... "allt í einu mætti ég 2 ógislega stórum mönnum sem héldu að þeir væru að keppa í ólympíuleikunum í dvergakasti!!!" hehehehe... já það var eiginlega nákvæmlega þannig. 2 risar gripu allt í einu í ágústu, litlu, sætu og fínu, lyftu henni yfir höfuð sér og héldu henni þannig í þó nokkra stund. ágústu kallaði og kallaði "rut, rut!!!" og horfði á mig ógnarstórum augum. ég lamaðist gjörsamlega úr hlátri... hvað átti ég að gera??? í staðinn fyrir að rétta elskulega vinkonu minni hjálparhönd, kútveltist ég þarna í sófanum og orgaði gjörsamlega... þetta var svoooo fyndið. en loksins slepptu risarnir henni. ágústa var þá orðin mjög reið og vildi hefna sín, en vissi ekki alveg hvernig. það endaði með því að hún hrinti öðrum allsvakalega þ.a. hann færðist um 2.7 mm, og strunsaði svo til mín. hehehe... þeir gera þetta sko ekki aftur, hlutu þarna makleg málagjöld og munu eflaust hætta að hrella ungar stúlkur með þessum leik sínum... you showed them!!
stuttu seinna ætlaði ungur drengur að setjast á stól við borðið okkar, nema hvað að um leið og hann ætlaði að tylla sér þá kippti annar strákur stólnum undan honum þ.a. sá fyrri hlammaði sér beint á gólfið. hehehe... ég hélt ég yrði ekki eldri, þetta var bara of mikið... hehehehe... enda fór ég heim stuttu seinna.

föstudagur, janúar 24, 2003

ég, stirðasta kona heims, fór í jógatíma í vikunni. ég var í hláturskasti. "teygja, teygja, anda, anda, snerta á sér tærnar..." æ dónt þenk só! fyrir það fyrsta er ég lítið fyrir tásnertingar og svo hreinlega næ ég varla niður á tærnar á mér... bílív-jú-mí. en eftir allmikið af teygjuæfingum þá tókst það nú, jei. en svo gerðist leiðinlegt. ég er ekki alveg orðin vön þessari leikfimi svo að ég hef þjáðst alla vikuna af gríðarmiklum harðsperrum. þannig hef ég tapað þessum "liðleika" sem ég hafði náð og ég næ varla niður á hnén á mér, hvað þá lengra!
jógakennslukonan var rosa fyndin. ætli hún hafi ekki verið rússnesk og gifst íslenskum manni fyrir langa löngu, því hún talaði líka svona góða íííííslensku. nema hvað að hún hafði ekki alveg tapað hreimnum, stúlkukindin. ég dó næstum því í hvert skiptið sem hún kallaði til okkar "bara bínu lídið, bara bínu lídið" í gríð og erg... heheheh...
en hin vænsta kona bara, kann að fara í splitt og alls kyns.

fimmtudagur, janúar 23, 2003

til hamingju með afmælið hildur!
magnað að eiga afmæli sama dag og vestmannaeyjagosið.

mánudagur, janúar 20, 2003

ágætis helgi.
á föstudagskvöldið fór ég á stíg kára og spilaði gettu betur með vinum. á laugardaginn vaknaði ég svo snemma, keypti mér líkamsræktarkort og fór í einn body pump-tíma. þar komst ég að því hversu aum ég er, aldnar konur voru að lyfta stöngum með mörgum mörgum lóðum á, á meðan ég var með voða voða lítið. samt nógu mikið til þess að fá harðsperrur daginn eftir :p en þetta stendur allt til bóta. á laugardagskvöldið spilaði ég trivial og gettu betur með mömmu, pabba og vinafólki.
ég spyr... er ég lúði?

í gærkveldi fór ég í bíó með stebba og strákum til að sjá 8 mile. jesússssss... leikurinn í myndinni var öööömurlegur, sagan var asnaleg... mæli ekki með þessari ræmu. kim basinger - óskarinn... æ dónt þenk só! hverjum datt líka í hug að gera mynd um eminem? líklegast honum sjálfum... kommon.

föstudagur, janúar 17, 2003

ég er á 4. önn tölvunarfræðideildar háskólans í reykjavík og er núna að taka fyrsta stærðfræðikúrsinn minn, strjála stærðfræði. þetta finnst mér mjög skemmtilegt. hver man ekki eftir sammengi, mismengi og mengjamun úr 3. bekk mr, já eða prímtölum úr... hvurslags... hvenær lærði ég það aftur? það er a.m.k. mjög langt síðan. ég og stebbi vorum í fyrradag að fara yfir mengjafræði með steinari, nemanda 3. bekkjar mr... seisei, dæmin hjá honum voru flóknari en þau sem sett voru fyrir hjá okkur. það fannst mér fyndið.

með þessu er ég ekkert að gera lítið úr skólanum, alls ekki. flest sem við tökum er mjög massíft, þá einna helst öll verkefnavinna, en þessi kúrs er bara bjútífúl, ágætt að hafa einn svona, e-ð sem maður hefur séð áður. en áherslan hér er greinilega önnur en uppi í hí, en það er bara gott, gott að hafa valið. heyr heyr...

...en ég meina samt ekki valið auðvelt/þungt... neinei... bara öðruvísi.

hver veit nema þetta muni breytast í e-ð rocket science þegar lengra er liðið á kúrsinn... ?spurning?

fimmtudagur, janúar 16, 2003

ég held að ég hafi vanist of góðu úti í danmörku hvað svefn varðar. fyrstu vikurnar þar var ég reyndar mjög dugleg, það sást jafnvel til mín kl. 9 á morgnana, kannski úti í garði, að lesa lexíurnar mínar. svo fór að kólna og dimma og ég varð þreyttari, svaf þá oftast til hádegis og rembdist svo við að læra eftir hádegi. á íslandi er kalt og dimmt... ergo: ég er mjööög þreytt. ég tók t.d. baunann á daginn í dag, átti að mæta kl. 13 í skólann en svaf yfir mig! geri aðrir betur! ég er sem sagt búin að vera heima hjá mér í dag, vera kalt og reyna að læra... en danskt.
ég strengdi ekki neitt áramótaheit þetta árið. má gera það svona soldið eftir á? alla vega, ef það má þá ætla ég að strengja þess heit að mæta alltaf í skólann í réttum tíma, eða næstum því alltaf að minnsta kosti... heit þurfa jú að vera raunsæ. úú já, og að vera dugleg í skólanum, en það eru bara fastir liðir eins og venjulega, e-ð sem ég segi fyrir hverja skólaönn :-S

þetta með strætóferðina góðu úr breiðholtinu... rúnar, ég er ekki að ýkja! tók 111 niður í mjódd, skipti þar og tók sexuna niður í hr. málið er að sexan keyrði þvílíkar krókaleiðir, ég var þarna á rúnti um hverfi sem ég vissi ekki að væru til! hálftími, þenkjú verrí næs.

annars er ég að fara að elda fisk í fyrsta skiptið í kvöld, alveg sjálf. ég eldaði fullt í danmörku, en aldrei elduðum við fisk. ég er búin að taka loforð af öllum á heimilinu... það er bannað að geifla sig og gretta, bannað að skila eða leifa og bannað að elda sér e-ð annað sökum brags/óbrags matarins. annars er þetta e.k. ofnréttur með tómötum (ömmmm), papriku og alls kyns, svo er kotasælusósa með... hmmmm... ég hef sko aldrei smakkað þetta áður, fann þetta í e-rri matreiðslubók.
pjúffff... ég er nú meiri kellingin, sei sei.

miðvikudagur, janúar 08, 2003

hummm... gleðileg jólin, restina, nýja árið.

ég er ekkert búin að skrifa á þessa blessuðu síðu síðan 20. desember... hef eiginlega ekkert að segja núna... skrítið. ég lifi greinilega rússíbanalífi...

en jólin eru búin að vera alveg yndisleg, matur, drykkur, sælgæti, kökur og massamikill svefn. það var því erfitt að mæta skyndilega í skólann í fyrradag kl. 9. ég er samt búin að vera mjög dugleg, mætti á réttum tíma þá, og í gær (kl. 8 !!!), en það klúðraðist í dag, átti að mæta kl. 10:05, sem náðist ekki. ég er að bíða eftir tíma númer 2 sem er jafnframt síðasti tíminn minn í dag, en það er bara bjútífúl. en ég vil ekki taka þessa seinkun algjörlega á mig. helv. strætó!!! ég var að taka strætó í fyrsta skiptið í breiðholtinu í skólann... vesen vesen. í staðinn fyrir að vera korter á leiðinni frá elskulega hafnarfirði þá er ég hálftíma frá "elskulega" breiðholtinu.
ég er alltaf að pirrast á þessu strætósystemi, ætti kannski bara að fá mér bíl, svona geðheilsunnar vegna... spurning.