ég var sko ekki par anaegd... jaja... rut faerseth hér!
föstudagur, júní 27, 2003
ég for i fotbolta i miklatuni i gaer med godu folki. kristin sagdi mér ad gaui hafi spurt hana hvort ég vaeri e-d i fotbolta, ad aefa eda e-d (ekki thad ad hann hafi nokkurn timann sed mig spila fotbolta!). "nei" sagdi hun, "akkuru spyrdu?". "hun er e-d svo fotboltaleg." fotboltaleg!!! fotboltaleg!!! lelluleg!!!
ég var sko ekki par anaegd... jaja... rut faerseth hér!
ég var sko ekki par anaegd... jaja... rut faerseth hér!
fimmtudagur, júní 26, 2003
er thetta ekki hann laugi gamli?
flott mynd.
flott mynd.
thessi nyi blogger er ekki ad gera goda hluti fyrir okkur islendinga... eda fyrir mig amk. eg tharf ad skrifa allt a utlensku, annars kemur allt svona ????????... rut sigurðardóttir
miðvikudagur, júní 25, 2003
ég hef verið að fylgjast með veðurspánni fyrir helgina vegna útilegunnar góðu.
það er greinilega eeeekkert að marka þetta dót.
í gær var spáð svörtum skýjum með rigningu alla helgina í skaftafelli, í dag er spáin aftur á móti með sól og þurrk. hverju á maður eiginlega að trúa? ég tékka aftur á þessu á morgun.
ég er orðin svona eins og fólk sem er alveg obsesssssed af veðrinu. þekki einn sem tekur veðurfréttirnar upp á hverju kvöldi... hehehe.

þriðjudagur, júní 24, 2003
fyrsta sumargleði (sumarsins) var um helgina... jónsmessuhátíð á eyrarbakka. pjúúúúff hvað það var gaman. þarna hitti ég alla, alla eyrbekkinga og meira til. það var brenna í fjörunni, sungið og dansaður vikivaki. á rauða húsinu var svo ball í tjaldi og gítarstemma inni. það var ýmislegt þetta kvöld sem benti eindregið til þess að ég væri 17 ára, en ég er nokkuð viss um að svo hafi ekki verið... mjög skrítin tilfinning. en það er skemmst frá því að segja að ég og stebbi töltum heim á leið kl. 8:30 til bjargar ólöfu sem hræddist bjarna skúlason afar mikið...
"hvar varstu bjarni?"
"ha... hver...???"
"þú bjarni!"
"ég..?"
hehehe... við vorum í hláturskasti.
svo vorum við vakin eldsnemma (kl. 14) þar sem ragnheiður tvíburamamma var búin að elda humarpottrétt! ekkert smá sem var stjanað við mann.
það er alltaf svo yndislegt að koma á bakkann.
þeir sem þekkja til vita að ef ég væri ofurhetja þá væri ofurkrafturinn minn að ég yrði ekki þunn... nema hvað, ég búin að tapa giftinni! damn! ræði það ekki frekar.
það var fjör í bílnum á leiðinni heim... "hvað segiði, er það svo ekki útilega um næstu helgi?" giiiiiiisp... gúlp!
jájá, það er útilega um næstu helgi í fellinu fagra er kennt er við skafta. ég hlakka til... meira síðar.
óver and át!

fimmtudagur, júní 19, 2003
þóóóóóórhildur á ammæli, á ammæli, á ammæli...
þóóóóóórhildur á ammæli, á ammæli í dag.
til hamingju ástin mín (",)

miðvikudagur, júní 18, 2003
ég bara verð að segja frá alveg brilliant hugmynd sem kom upp í gær. hún spratt út frá pælingunni "hvað mynduð þið skíra skemmtistaðinn ykkar?". ágústa kom þá með snilldar nafnið rassgatið. við fórum ansi langt með þessa pælingu... kannski of langt. en...
hversu sniðugt er að geta sagst vera á rassgatinu. þarna inni væri allt rassgatsþematengt. dyrnar væru hringlóttar, eða rassgatslaga, á milli laga myndi dj-inn spila prumpuhljóð og senda vænan gust yfir salinn. í sætunum væru prumpublöðrur sem væru fylltar random. þegar e-r settist svo á eina þanda, þá hætti tónlistin og ljóskastara væri beint að þeim og hinum sama og hann fengi t.d. kúkafýlusprey í verðlaun. þarna væri heldur ekki fatahengi heldur kleprahengi!!! endalaust stuð, langt fram á nótt.
ef e-r vill kaupa þessa hugmynd þá hafið samband... ég mun koma því til skila.

ágú og þórhildur komu í heimsókn snemma í gær í þessu líka þjóðhátíðarskapi. þær höfðu vaknað við "öxar við ána" og höfðu þá þegar heyrt "hæ, hó, jibbí jei" og vildu því endilega drífa sig niður í bæ að sýna sig og sjá aðra. þær rifu okkur því á lappir og út. á leiðinni niður í bæ fundum við upp á alveg frábærum leik... leik sem snerist um það að giska á það fyrir fram hve mörgum við heilsum, hve marga við kyssum og hvað hópurinn sem heild heilsar mörgum... eða "við sem fjölskylda", eins og e-r sagði svo snilldarlega. sumir voru mjög fljótt búnir með sinn "hæ"-kvóta og var hinum því mjög skemmt í hvert sinn sem þeim og hinum sama var heilsað, hvað þá ef ráðist var á hann og kysst... þrátt fyrir að vera löööngu búinn með kyssukvótann sinn!!! við bættum við einni reglu þegar við sáum að við sprungum flest fljótt og leyfðum það að ef maður heilsaði "óvart" fleirum en maður var búinn að segjast ætla að gera, þá mátti reyna að ná að heilsa eins mörgum og maður sagði að við sem fjölskylda gerðum og eyðileggja þannig fyrir öðrum. að auki voru nokkrar litlar reglur eins og það varð að heilsa manni á móti... svona ef e-r skyldi ætla að grípa til örþrifaráða á heimleiðinni kannski og heilsa bara e-jum sem hann þekkti ekkert... iiiiiii. eins myndi fólk sem væri í innsta hring, sem við þekktum öll vel, núllast út. ólöf, rúnar og steinar núlluðust út í þessari ferð. svo fór nú næstum að ágústa núllaðist út vegna hungurs, en við rétt sluppum inn á gráa köttinn til að koma í veg fyrir slíkan ófögnuð. en það er skemmst frá því að segja að ég og ágústa sigruðum, hún með rétta tölu fyrir sig sem einstakling og ég með rétta tölu fyrir okkur sem fjölskyldu. ég mæli með þessum hressa leik fyrir tækifæri eins og 17. júní, menningarnótt og svoleiðis.
mánudagur, júní 16, 2003
á laugardagskvöldið "fögnuðum" við því að herdís væri að fara í sinn fyrsta gæd-túr austur á vík í mýrdal... morguninn eftir. ég, stibbi og dísa sprönguðum í bæinn með bros á vör og sól í hjarta, kíktum á sirkus, kaffibar og loks á prikið. mér hefur ekki þótt skemmtilegt þarna upp á síðkastið, en annað var uppi á teningnum þetta kvöld. þrenningin við dönsuðum sem aldrei fyrr. stebbi pikkaði fæt við e-jar stelpuskjátur, sem reyndu að kíla hann í ennið, sem var frekar fyndið... eitt skond fyrir það. svo er ég komin með samkeppni, en ég er víst ekki sú eina sem er skotin í stebba. það er ungur drengur sem er ástfanginn af honum og reyndi að kyssa hann þarna um kvöldið... tíhí... annað skond fyrir það. eftir mikið tjútt og trall fórum við heim, herdís átti nefnilega að taka rútu á vík kl. 8:30... sem var eftir ekki svo mjög langan tíma.
eftir örsvefn hringir herdís í mig í miklu uppnámi... "ég missti af rútunni í morgun... viltu skutla mér á vík í mýrdal?" einmitt það sem ég óskaði mér! hehehe. það fór svo að ég dreif mig á lappir og hentist með hana á eyrarbakka þar sem mamma hennar flutti hana restina. aumingja herdís. hún stillti víst vekjaraklukkuna sína á 5:25, nema hvað að 5:25 var bara liðið!!! hún er nú alveg yndisleg.
eftir þessa reisu fór ég og stebbi í pönsur og skonsur hjá ömmu. á morgun er stefnan sett á candyfloss og rellu niðri í bæ.

föstudagur, júní 13, 2003
ógislega fyndið að hafa lauksúpupartí!!!
ég hefði þurft að afþakka það pent...
ég hefði þurft að afþakka það pent...
mig dreymdi í nótt að ég hefði hitt hjölla dagnýjar á djamminu og hann hafði breytt algjörlega um stíl. hann var nú einu sinni orðinn tölvunarfræðingur og fannst þá viðeigandi að klæðast jakkafötum og rúllukragabol... gríðarlega hjöllalegt, ekki satt?
ég var í hláturskasti.
ég var í hláturskasti.
fimmtudagur, júní 12, 2003
það rennur vart í mér blóðið...
a.m.k. ef marka má blóðþrýstingsmælinguna í vinnunni áðan.
ég er sem sagt með lægsta blóðþrýsting vinnustaðarins... eða eins og læknirinn sagði "blóðþrýsting á við 5 ára barn". mælirinn sýndi 105/58. efri mörkin eiga að vera jafnmikið yfir 100 eins og maður er gamall... ergo blóðþrýstingur á við 5 ára!!! ég á að passa mig á því að standa ekki upp mjög snöggt upp svo það líði hreinlega ekki yfir mig. já seisei. þess vegna er ég svona þreytt alltaf og endalaust. ég er samt engin gufa... er það nokkuð?
best að leggjast í lakkrísinn :-)

miðvikudagur, júní 11, 2003
úú... við fengum innflutningsgjafir tvær í gær.
vöfflujárn frá ömmu sem er ótrúlega flott. þ.a. þegar þið komið næst í heimsókn þá verð ég búin að kaupa vilko vöffluduft ( ;-) og skelli í nokkrar pjötlur... haldiði að það sé nú fínt. svo færðu m+p okkur þennan líka fína örbylgjuofn. sá á eftir að koma sér vel. fyrir mig því mér er lífsins ómögulegt að skammta 2-3 manneskjum pasta, elda alltaf fyrir 76 manns, gott að geta hitað herlegheitin bara upp daginn eftir... og næsta og næsta og næsta. jújú segðu. fyrir stebba því hann er alinn upp við mikið mikið poppát (önnbílívúbúl), enda fékk hann líka einn stóran orville með sem hann svaf með undir koddanum í nótt. já þessi örbylgja er mikill gleðigjafi.

heheheh... bréf dabba til bush... frekar fyndið.
maaaan.
nestið sem ég gleymdi upp á ísskáp heima í gær... ég mundi eftir því í morgun, en gleymdi að borða það í hádeginu!!! það er bara að úldna í töskunni minni.
mikið er ég pen.

þegar við fengum að velja okkur símanúmer af sparilista símans, þá grunaði okkur ekki hversu mikil kvöð það væri að vera með svona afskaplega fallegt númer. þeir sem ekki vita þá er síminn okkar 552-2020... sem er bara kúl. en daginn eftir að númerið var tekið í notkun þá kom heilsíðuauglýsing í fréttablaðinu "bókaklúbburinn ingólfur" (eða e-ð) að auglýsa disneybækur... "hringið strax og pantið í síma 522-2020". við vorum á fullu að svara spurningum fólks um disney eftir þetta.
hrafnhildur lille söster er nú heima og hefur ekki undan við að svara í símann... ekki það að við séum svona vinsæl, neinei. alls kyns fólk að spyrja um hina ýmsustu hluti. hrafnhildur slökkti á símanum fyrir rest um daginn þegar hún höndlaði ei meiri símsvörun. í gær hringdi e-r og spurði hana hvort galdrakonur væru í þessu númeri. það er magnað!!! hvaða erindi ætli þessi manneskja hafi átt við þessar galdrakonur... og hverjar eru þessar galdrakonur eiginlega???
annars á hrafnhildur afmæli í dag... seytján ára skvís.
til lukku elsku dúllan mín!!! (k)

þriðjudagur, júní 10, 2003
loksins loksins sýndi msn-ið mitt viðbrögð og loggaði mig inn. núna er ég algjör gella, komin með msn messenger v. 6.0 sem ég nálgaðist hér með hjálp þórhildar með hjálp gumma. þetta er e-ð voða fínt, myndir og svoleiðis. svo getur maður m.a.s. sent svona emoticon með kind og snigli, sem er voða sætt.
annars var helgin fín. þriggja daga helgar eru yndislegar. annar í öllu er svo frábært. á föstudaginn fór ég í útskrift til þorbjargar sem var mjög skemmtilegt. hún var ýkt sæt og fékk fullt af fallegu dóti í útskriftargjöf, eins og tussurennu. svo fórum við í bæinn á staði eins og kaffibar, sólon (þar sem stebbi fékk grænar bólur), 11 og sirkus sem var algjör snilld. við enduðum svo á devitos (eins og venjulega).
hallur átti svo óvænt afmæli á sunnudaginn. hann vissi ekki neitt greyið, það var búið að ljúga hann fullan, hann svo bara í heimsókn til öfu sinnar í kef, kom svo heim þar sem slegið var upp góðu geimi.
aldrei hef ég fengið svona supplæs veislu... annars á ég afmæli 13. maí, ef e-jum dettur það í hug á næsta ári.