þriðjudagur, apríl 07, 2009

ooooo þjóðverjar...
mér finnst alveg ótrúlegt hve viljugir heimsfrægir hollywood-leikarar eru í að taka þátt í þýskum spjallþáttum eða leika í þýskum auglýsingum. það hlýtur að vera massa peningur í þessu... það getur amk ekki verið að þeir geri þetta fyrir kúlið. svo döbbar þjóðverjinn allt... ALLT! er virkilega ekki hægt að fá bruce willis til að segja "hatte ich" tvisvar sinnum? mér finnst þetta alveg steikt.


og brad pitt í auglýsingu fyrir skíta-internetfyrirtækið sem náði næstum að skemma desember síðastliðinn fyrir okkur...

hvað er málið!?!?