miðvikudagur, nóvember 04, 2009

erwin olaf

ég fundaði í dag með einum kennara vegna verkefnis sem ég er að fara að vinna hjá honum. þessi kennari er listasögu-prófessor, alveg týpískur slíkur, rólegur og hlégdrægur nörd. ég hef þó komist að því að hann er svolítill leynitöffari. í dag var hann í svörtum jakkafötum og í hvítri skyrtu með stórum kraga a la john travolta, svo hef ég séð hann keyrandi um á svörtum 2ja dyra jagúar eða porsch (þekki ekki muninn á svona typpabílum). þetta er kennari að mínu skapi

verkefnið sem ég er að fara að vinna hjá honum er ritgerð og efnið er nokkuð frjálst. ég ákvað í dag að skrifa um hollenska ljósmyndarann erwin olaf, sem er aaalgjör snillingur. hann hefur gert alveg hrikalega flottar myndir, sem oft líta út eins og málverk. og það er allt fullkomið. lýsingin, stílíseringin og uppröðun hluta, staða módela og ekki síst litirnir eru fullkomnir. módelin eru alltaf án allra svipbrigða, alveg "tóm" í framan, og minna oft á gínur í búðarglugga.

ég hlakka til að grafa dýpra í verk þessa meistara. það væri líka gaman að gera bráðum erwin-olaf-inspireraða fótósjút...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

jibbí kóla. takk fyrir blogg

hildur maría

10:17 PM  
Blogger Rut said...

vellkomm

10:38 AM  
Blogger Ágústa said...

Enn skemmtilegt! leynitöffarar eru mestu töffararnir ...

hlakka til að sjá rerwin solaf myndir

10:42 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim