undirbúningur
núna er komið hádegi og ég búin að sauma buxur. skil ekkert í mér að setjast ekki oftar við saumavélina, það er alveg hrikalega gaman. þetta eru buxur sem ég ætla að nota í fótósjút sem er hluti af verkefni sem ég er að gera í skólanum og ber yfirskriftina "transgender portrett sería af norrænum guðum". buxurnar sem ég gerði í morgun eru á þór. svo er ég með efni í poka fyrir buxur á óðinn, hann fær eins, bara í öðrum lit. í gær fór ég í búningaleigu og varð mér úti um þórshamar, glófa og megingjörð fyrir þór, drykkjarhorn og uppstoppaðan hrafn fyrir óðinn. þessi búninga-/propsleiga var algjör gullnáma! var alveg að tapa mér þarna inni... það var gjörsamlega aaaallt til þarna!ég hlakka heví mikið til að skjóta þetta. svo er ég með nokkur önnur plönuð myndaverkefni framundan, öll mjög spennandi. brjálað að gera hjá mér, en ég nýt þess í botn!


7 Comments:
mér hlýnar um hjartarætur að heyra að þú sért farin að blogga aftur. er búin að sakna bloggsins þíns. veivei haltu áfram
Spennandi verkefni hjá þér. Hlakka til að sjá afrakturinn...
frábært þú er svo dugleg. En stóra spurningin mín er hver fer í hlutverks þórs og óðinns
luv
-H-
ég er komin með æðislegt módel sem ætlar að vera þór fyrir mig. ég er enn að leita að óðni...
Óðinn er fundinn...
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item311846/
enn skemmtilegt rut. ég er mjög forvitin að sjá hvernig transgender goða buxur líta út!
hljómar vel!
hlakka til að sjá útkomuna.
bestu kveðjur
Hulda Sif
Sendu inn athugasemd
<< Heim